|

Fjármálaþjónustan ehf. sérhæfir sig í fjármálaráðgjöf fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Starfsemin byggir á námskeiðum, verkefnatímum, hópastarfi og einstaklingsráðgjöf. - Á námskeiðum lærir þátttakandi vinnuaðferðir til að bæta fjárhagsstöðu sína.
- Hann öðlast skilning á hvað sá hefur tileinkað sér sem nýtur velgengni í fjármálum.
- Hann öðlast skilning á hverju hann þarf sjálfur að breyta til að öðlast velgengni.
- Í einkatímum eru er vandinn fundinn, möguleg lausn og aðgerðaráætlun gerð.
- Á meðan unnið er að lausn er veittur marþættur stuðningur eftir þörfum hvers og eins.
Eins og undanfarin ár verður Fjármálaþjónustan með fjölda námskeiða um allt land á árinu. Sjá má nákvæmar dagsetningar og tímasetningar annarstaðar hér á síðunni. Fjármálaráðgjöfin byggir á hugmyndafræðinni “ Leiðin til velgengni” Samkvæmt þeirri hugmyndafræði er góð fjármálaþjónusta fólgin í að: - Finna og greina fjármála vandann.
- Finna lausnir.
- Semja aðgerðaráætlun.
- Veita stuðning og handleiðslu á meðan unnið er að lausn.
- Greina fjármálþroska hvers og eins.
- Finna hvað kaupandinn þarf að tileinka sér til þess að batinn verði viðvarandi og vöxtur geti átt sér stað.
Hver sá sem er tilbúin að taka ábyrgð á fjármálum sínu og vill fá tækifæri til að bæta fjárhag sinn er velkomin til að taka þátt í starfsemi Fjármálaþjónustunnar ehf. Hægt er að nálgast þjónustuna á tvennan hátt. - Annarsvegar með því að sitja námskeiðið - Úr skuldum í jafnvægi - eða námskeiðið - Að bera ávöxt. Bæði námskeiðin byggja á hugmyndafræðinni Leiðin til velgengni. Á námskeiðinu er áframhaldandi þjónusta kynnt og fólk getur valið hvort það tekur þátt. Sá sem velur að taka þátt byrjar á að panta einkatíma þar sem markmið eru skilgreind
- Hinsvegar er hægt að byrja á að panta einkatíma. Þar er markmið og þjónustuþörf skilgreind. Búin er til aðgerðaráætlun og verkefnalisti. Í verkefna og hópatímum eru verkefnin unnin. Reglulega er árangur metin og búin til ný markið.
|
|