Ráðgjafaskóli LTV

Nám fyrir fagaðila

Ráðgjafaskóli LTV er sérhæft nám fyrir fagaðila sem vilja öðlast þekkingu og
færni til að vinna með einstaklingum í fjárhagsvanda

Námið leggur áherslu á að greina fjármálavanda og læra árangursríkar leiðir til að hjálpa fólki að ná fjárhagslegu jafnvægi og auknum lífsgæðum. Námið er sérstaklega ætlað þeim sem starfa innan endurhæfingar, félagsþjónustu, ráðgjafar eða annarrar þjónustu þar sem fjármál hafa áhrif á líðan, heilsu og starfsgetu fólks.

Að námi loknu eiga nemendur að geta kennt námskeiðið „Úr skuldum í jafnvægi“og veitt einstaklingsmiðaða fjármálaráðgjöf fyrir fólk í fjárhagserfiðleikum.

Námið: uppsetning og fyrirkomulag

Skipulag námsins:

Námið er tvær annir og skiptist í þrjár lotur. Hver lota stendur yfir í fimm vikur.

Kennslufyrirkomulag:

  • Kennslusvæði: Hver nemandi fær aðgang að lokuðu kennslusvæði með kennslumyndböndum, verkefnum og námsgögnum.

  • Vikulegir fundir: Á þriðjudögum frá kl. 17:00–18:00 eru rafrænir fundir (á zoom) þar sem nemendur geta fengið leiðsögn og aðstoð. (fundardagsetningar eru settir niður í kennsluáætlun).

Fyrsta lota

Nemendur sitja námskeiðið „Úr skuldum í jafnvægi og vinna heimaverkefni sem fylgja námskeiðinu. Farið er yfir hvernig fjármálavandi myndast og hvað þarf til að ná varanlegum árangri. Nemendur tileinka sér vinnubrögðin og hugmyndafræðina með því að vinna með sín eigin fjármál.

Önnur lota

Í annarri lotu er farið dýpra ofan í fræðin, Leiðin til velgengni.

  • Kennd fyrstu skrefin við að taka fyrsta viðtal og greina vanda.

  • Lesa úr vanskilaskrá og skuldastöðu.

  • Hvernig vandinn er uppgötvaður.

  • Hvernig fólki eru sett verkefni sem eru viðráðanleg og í takt við þeirra fjármálaþroska.

  • Farið í úrlausnir á mismunandi tegundum skulda og skuldastöðum.

Farið er yfir lausnir vegna:

  • Skattaskulda

  • Námslána

  • Meðlagsskulda

  • Dómsekta

  • Sakarkostnaðar

  • o.s.frv.

Nemendur læra að velja þá lausn sem hentar hverju máli út frá heildarmynd fjármálavandans og hvaða úrræði og lausnir eru í mögulegar á Íslandi og hvað þær leiðir eða úrræði bjóða upp á.

  • Gjaldþrot

  • Umboðsmaður skuldara

  • o.s.frv.

Þriðja lotan

Í þriðju lotu finna nemendur sér einn skjólstæðing og veita honum ráðgjöf undir handleiðslu. Í lok lotunnar skila nemendur verkefni þar sem farið er yfir stöðu skjólstæðings og val á úrræðum.

Nemendur fá einnig kennsluleiðbeiningar og glærur fyrir námskeiðið „Úr skuldum í jafnvægi“.

Útskrift: Að námi loknu fær nemandi viðurkenningarskjal fyrir að hafa lokið 140 stunda námi í Ráðgjafaskóla LTV.

Hverjir hafa sótt Ráðgjafaskóla LTV?

Þátttakendur í Ráðgjafaskóla LTV hafa komið úr fjölbreyttum áttum og starfað innan ólíkra stofnana og þjónustuúrræða

  • Starfsendurhæfing Hafnafjarðar – Stendur

  • Starfsendurhæfing Suðurnesja – Samvinna

  • Starfsendurhæfing Vesturlands

  • Reykjalundur

  • Hjálparstarf Kirkjunnar

  • Reykjavíkurborg

  • Nemendur í meistaranámi í félagsráðgjöf