Ég hef starfað við að aðstoða fólk með fjármál og úrlausn fjármálavanda frá árinu 2009. Í gegnum árin hef ég unnið með einstaklingum og fjölskyldum sem hafa glímt við skuldir, fjármálakvíða og erfiða fjárhagsstöðu með það að markmiði að hjálpa fólki að ná aftur stjórn, jafnvægi og von í eigin fjármálum.
Ég samdi námskeiðið Draumar og Drekar sem hefur verið kennt innan endurhæfingar frá árinu 2009. Námskeiðið byggir á því að hjálpa fólki að vinna með drauma sína, sjálfstraust og innri ótta sem geta haft hamlandi áhrif á lífsgæði og trú á eigin möguleikum.
Ég hef einnig kennt fjármálanámskeiðið „Úr skuldum í jafnvægi“ fyrir meðal annars Virk, sveitarfélög og Hjálparstofnun kirkjunnar, ásamt því að veita einstaklingsmiðaða fjármálaráðgjöf fyrir fólk í fjárhagserfiðleikum.
Árið 2022 stofnuðum við Garðar Björgvinsson Fjármálaskóla LTV þar sem markmiðið er að mennta ráðgjafa sem geta hjálpað fólki að skilja stöðu sína, vinna úr skuldavanda og byggja upp betri fjárhagslega framtíð.Ég hef einnig lagt stund á framhaldsnám í mindfulness við Dansk Center for Mindfulness í Árósum í Danmörku og hef mikinn áhuga á tengslum sjálfseflingar, núvitundar og fjárhagslegrar vellíðunar.
Ég er grunnskólakennari með áherslu á lífsleikni, samfélagsfræði og leiklist í kennslu og hef að auki menntun í ferðamálafræði.

Garðar Björgvinsson er höfundur hugmyndafræðinnar Leiðin til velgengni og námskeiðsins „Úr skuldum í jafnvægi“ sem hefur verið kennt í endurhæfingu og fyrir einstaklinga sem vilja vinna sig út úr skuldavanda og ná betra jafnvægi í lífi og fjármálum.
Í gegnum árin hefur Garðar unnið með fjölda einstaklinga sem hafa glímt við skuldir, fjármálakvíða og erfiða fjárhagsstöðu. Í starfi sínu hefur hann lagt áherslu á að hjálpa fólki að öðlast skilning á eigin stöðu, byggja upp sjálfstraust og finna raunhæfar leiðir út úr fjárhagsvanda.
Leiðin til velgengni byggir á þeirri sýn að fjármálastaða einstaklings endurspegli fjármálaþroska hans. Fræðin skipta þroskagöngu einstaklings upp í sjö þroskastig þar sem hugsun, hegðun og fjármálastaða tengjast. Markmiðið er að hjálpa fólki að skilja hvað heldur því föstu í erfiðri stöðu og hvernig hægt er að þróa nýja hugsun og hegðun sem leiðir til varanlegra breytinga.
Árið 2022 stofnaði Garðar ásamt Katrínu Garðarsdóttur Fjármálaskóla LTV. Markmið skólans er að mennta ráðgjafa og fagaðila sem geta hjálpað fólki í fjárhagserfiðleikum á faglegan, mannlegan og uppbyggilegan hátt. Þar er lögð áhersla á að ráðgjafar læri að greina fjármálavanda, skilja heildarmynd einstaklingsins og vinna með lausnir sem styðja við raunverulegar og varanlegar breytingar.