við bjóðum ýmsar leiðir

Við bjóðum námskeið fyrir einstaklinga sem og einkatíma ásamt því að bjóða upp á Ráðgjafaskóla LTV fyrir stofnanir og fyrirtæki. 

Einnig er hægt að bóka einkatíma til að komast enn
betur að því hvað gæti hentað þér.

ráðgjafaskóli ltv - fyrir fagaðila

Ráðgjafaskóli LTV er sérhæft nám fyrir fagaðila sem vilja öðlast þekkingu og færni til að vinna með einstaklingum í fjárhagsvanda. Námið leggur áherslu á að greina fjármálavanda og læra árangursríkar leiðir til að hjálpa fólki að ná fjárhagslegu jafnvægi og auknum lífsgæðum.

úr skuldum í jafnvægi

Úr skuldum í jafnvægi er námskeið fyrir fólk vill komast út úr fjármálavanda eða fyrir þá sem eru óöruggir í fjármálum. Margir fyllast kvíða og ótta og vilja helst flýja frá þessum óþægindum. Unnið er með tilfinningar, sjálfstraust, að læra að vinna með fjármál sín, læra að hafa yfirsýn yfir fjármál ásamt því að læra og skoða leiðir úr skuldavanda. Kennd eru fræðin Leiðin til velgengni, sem er sjö þrepa þroskastigi. Þá skoðum við hugsun og hegðun tengda fjármálum og hvaða áhrif það hefur á fjármálastöðuna.

meðvituð fjármál

Væntanlegt námskeið

einkatími

Hægt er að koma í ráðgjöf á skrifstofu okkar að Suðurlandsbraut 22, 2 hæð (gengið inn að aftanverðu).

Fyrir þá sem óska þess að fá ráðgjöf í gegnum tölvu getum við einnig veitt ráðgjöf í gegnum vefforritið zoom, þá hefur þú samband í gegnum email (ltv@ltv.is) og færð sendan hlekk.

draumar og drekar

Draumar og drekar er 5 vikna námskeið þar sem þú skoðar hvað það er raunverulega sem þú vilt fyrir sjálfan þig út frá þínum eigin þörfum og óskum. Þú lærir að byrja að skoða það þangað til það er orðið alveg á hreinu og þá getur þú byrjað skref fyrir skref að setja það inn í líf þitt.

Fræðslustyrkir

Kynntu þér málið!

Átt þú rétt á fræðslustyrk frá þínu stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?

Kynntu þér endilega stöðuna í þínu stéttarfélagi hvort þú eigir rétt á styrk.