úr skuldum í jafnvægi

NETNÁMSKEIÐ

Úr skuldum í jafnvægi er námskeið fyrir fólk vill komast út úr fjármálavanda eða fyrir þá sem eru óöruggir í fjármálum. Margir fyllast kvíða og ótta og vilja helst flýja frá þessum óþægindum.

Ef fjármálavandi og óöryggi í fjármálum eru að angra þig - þá ertu á réttum stað!

Úr skuldum í jafnvægi er námskeið fyrir fólk vill komast út úr fjármálavanda eða fyrir þá sem eru óöruggir í fjármálum. Margir fyllast kvíða og ótta og vilja helst flýja frá þessum óþægindum. Unnið er með tilfinningar, sjálfstraust, að læra að vinna með fjármál sín, læra að hafa yfirsýn yfir fjármál ásamt því að læra og skoða leiðir úr skuldavanda. Kennd eru fræðin Leiðin til velgengni, sem er sjö þrepa þroskastigi. Þá skoðum við hugsun og hegðun tengda fjármálum og hvaða áhrif það hefur á fjármálastöðuna.

 

Námskeiðið er 5 vikna netnámskeið, einu sinni í viku opnast nýtt viðfangsefni, fyrirlestrar (upptökur) og verkefni því tengdu. Þú hefur vikuna til að klára verkefnin og hefur aðgang að þeim á meðan á námskeiðinu stendur.

VILTU VITA MEIRA?

UPPBYGGING NÁMSKEIÐS

1. ÁHRIF FJÁRMÁLACANDA Á LÍF OG LÍÐAN

Fræðsla að læra að lesa og greina fjármálavanda. Vanskilaskrá, skattur, meðlag, sektir, sakaksotnaður, innheimtufyrirtæki og fleira.

2. LEIÐIN TIL VELGENGNI

Skoðum hugsun, hegðun og líðan og hvaða áhrif það hefur á fjármálastöðu.

3. LEIÐIN TIL VELGENGNI

Skoðum hvað þarf að breytast í hugsun, hegðun og vinnuaðfeðum til að ná upp á næsta þroskaþrep.

4. JAFNVÆGI Í FJÁRMÁLUM

Jafnvægi í fjármálum náð, unnið með jafnvægi, sjálfstraust í fjármálum, læra að fá yfirsýn og skipulag og hvatning til að fara lengra.

5. HVAÐ ÞARF AÐ GERA?

Skoðum hvað þarf að gera til að ná velgengni. Hugsun, hegðun og einkenni áhættu, ástríðu og velgengni eru skoðuð út frá þroskagöngunni Leiðin til velgengni.

Þetta og fleira er útskýrt nánar þegar þú hefur skráð þig á námskeiðið. Vona að þú njótir ferðalagsins. - Kata

„Áhyggjur stöðva ekki sorgir morgundagsins - en þær taka allan styrk frá deginum í dag.“

— Norman Vincent Peale